Key Habits og fyrirtækið þitt styrkja íþróttafélagið Aþenu.


Aþena er íþróttafélag sem stofnað er af stelpum og hefur einsett sér að auka virði kvennaíþrótta á Íslandi og víðar. Önnur markmið félagsins eru að efla íþróttaþátttöku Íslendinga af erlendum uppruna. Gildi félagsins snúast um að nýta íþróttir til þess að þróa með iðkendum og þjálfurum sterka og verðmæta skapgerð.

Aþena var stofnuð 19. júní 2019 og hefur vakið mikla athygli á Íslandi og erlendis. Þó svo að síðustu þrjú ár hafa verið hindrunum stráð hefur Aþena með mikill seiglu komið sér í þá stöðu að hægt sé að byggja upp einstakt félag sem á að geta haft mikil áhrif á íslenskt íþróttalíf.




Aðstaða loksins tryggð

Nú er svo komið að Aþena hefur fengið aðgengi að íþróttahúsinu í Austurbergi sem gerir frekari uppbyggingu félagsins mögulega. Með þessari nýtilkomnu aðstöðu gefst Aþenu tækifæri til þess að bjóða upp á þjálfun fyrir stelpur á öllum aldri í Efra-Breiðholti (Fell og Hólar), þar sem íþróttaþátttaka barna er með lægsta móti í Reykjavík.

Þessu til viðbótar er meistaraflokkur félagsins, sem samanstendur af lang yngsta leikmannahóp í fyrstu deild kvenna, í stórsókn og stefnir á að spila um sæti í úrvalsdeild kvenna á næsta tímabili. Þrátt fyrir að almennur rekstur félagsins sé ekki kostnaðarsamur, þar sem allir þjálfarar og aðstandendur félagsins eru í sjálfboðavinnu, er félagið að taka sín fyrstu skref með erlenda atvinnukonu í meistaraflokki sem liður í því að skapa ný viðmið fyrir unga leikmannahópinn og gera liðið samkeppnishæfara í fyrstu deild.


This is some text inside of a div block.


Key Habits býður þeim fyrirtækjum sem styrkja Aþenu þjálfun fyrir starfsmenn sína.

Í boði er ein af vinsælustu vinnustofuseríum Key Habits Persónuleg Stefnumótun sem samanstendur af: Viðmið, Gildismat og Persónuleg Stefnuyfirlýsing. Þessi vinna er grundvöllur þess að fyrirtæki geti með góðum árangri sett kröfu á starfsfólk sitt um að framfylgja stefnu fyrirtækisins. Auk þess gagnast lítið að vera í stefnumótunarvinnu með einstaklinga sem hafa aldrei gert sína persónulegu stefnuyflýsingu. 

Allir þátttakendur fá hugbúnað til þess að einfalda vinnu sína.

Í key Habits þjálfuninni lærir starfsfólk að:
-Skilja mátt viðmiða í vinnu og almennu lífi.
-Sannreyna raungildi sín.
-Leiðir til þess að tengjast kjarnagildum.
-Skrifa upp einfalda og áhrifaríka persónulega stefnuyfirlýsingu.

Eftirfarandi þjálfunarpakkar eru í boði

Tvær vinnustofuseríur eru í boði.

1.000.000 kr styrkur 
10 starfsmenn 
5., 6. og 7.jan (eftirfylgdartími 4 vikum seinna)
Boðið verður upp á eftirfylgd á netinu næstu 4.vikur.

Eða 

1.000.000 kr styrkur 
5 stjórnendur.
19., 20. og 21. Jan (eftirfylgdartími 4 vikum seinna)
Boðið verður upp á eftirfylgd á netinu næstu 4.vikur.

*einnig má stilla upp annarri samsetningu starfsmanna og stjórnenda á vinnustofum óski fyrirtæki eftir því.

Umsagnir iðkenda

Key Habits býr yfir fjölbreyttum hópi iðkenda sem öll eiga það sameiginlegt að vilja efla sig í sínum forystuhlutverkum.

Sjáðu hvað iðkendur Key Habits hafa að segja um þjálfunina.

Þetta segja þau um Key Habits
Örn Guðmundsson
Forstjóri Mannvit
"Brynjar setur nýtt viðmið með sínum námskeiðum og kennir þátttakendum að lyfta sínum markmiðum og venjum á mun hærra plan en áður.''
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Eigandi DMC Incentive Travel
''Ef þú virkilega vilt verða betri þá er þetta aðferðafræðin."
Rakel Guðmundsdóttir
Sérfræðingur hjá Alfa Framtak
"Þú færð svo sjaldan svona heiðarlega endurgjöf en það er nákvæmlega það sem ég þarf til þess að ná enn lengra"
Páll Melsted
Prófessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands
‘’Þetta eru lífsnauðsynlegar aðferðir sem ég er að læra hérna. Þetta hjálpar mér ekki bara í vinnunni, heldur í lífinu almennt.’’
Heimir Hallgrímsson
Fótboltaþjálfari
''Ég mæli hiklaust með Key Habits''
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Skólastjóri Ísakskóla
„Key Habits hefur eflt mig sem stjórnanda. Betri hjálp við það að byggja upp liðsheild hef ég ekki fengið.“
Gróa Björg
Yfirlögfræðingur Skeljungs
"Brynjar er ekkert að sykurhúða hlutina, hann bara talar um hluti sem maður þarf að heyra og það er það sem fólk sækist í hér."
Vilhjálmur Matthíasson
Framkvæmdarstjóri/Eigandi Fagverk
''Key Habits fær mann til fókusa og horfa á það sem skiptir mestu máli''
Sundaborg 5   /   104 Reykjavík   /   keyhabits@keyhabits.is   /   511 4488