KEY HABITS · KYNNINGARFUNDUR

22. OKT

Fimmtudagur · kl. 20:00–22:00
Tryggja mér sæti

Þjálfunin byrjar núna

Komdu og upplifðu hugmyndafræði Key Habits. Á þessum 2 klst kynningarfundi mun Brynjar Karl, stofnandi Key Habits, færa rök fyrir því af hverju Key Habits er öflugasta æfingakerfi sem þér býðst til að auka virði þitt.

Þú mátt búast við uppörvandi hugmyndum um þjálfun og virðisaukningu en einnig krefjandi spurningum sem hvetja þig til umhugsunar. Hvort sem þú skráir þig í áframhaldandi þjálfun eða ekki, mun efni fundarins hreyfa við þér.

Tryggja mér sæti
Frí skráning · Takmarkað við 40 sæti · Sundaborg 5, Reykjavík

Ekki búast við töfralausnum. Þetta er alvöru vinna fyrir alvöru fólk.

Umsagnir um Key Habits:
Elfa Björk Björgvinsdóttir
Eigandi 22 Hill Hotel
"Ég ef farið á alls konar námskeið og ráðstefnur en það hefur ekki oft verið hreyft svona við mér."
Heimir Hallgrímsson
Landsliðsþjálfari Írlands í knattspyrnu
"Ég mæli hiklaust með Key Habits."
Bjarki Geir Logason
Stofnandi Happy Hydrate
"Brynjar er ekkert mikið að segja þér hvað þú átt að gera, heldur fær hann þig til að fara nógu djúpt til að þú áttir þig sjálfur á því hversu mikill hálfviti þú ert."
Rakel Guðmundsdóttir
Eignarhaldsstjóri Alfa Framtak
"Þú færð svo sjaldan svona heiðarlega endurgjöf en það er nákvæmlega það sem ég þarf til þess að ná enn lengra"
Aron Kristinn Jónasson
Tónlistamaður
"Ef það væri ekki fyrir Key Habits og Brynjar væri ég ekki nálægt því að vera lengst uppi. Ég hef tekið svakalegt stökk síðan ég byrjaði í „Key-inu“. Mæli með."
Sigþór Sigurðsson
Framkvæmdastóri Colas Ísland
"Brynjar er að nálgast þessa hluti öðruvísi en maður hefur séð annars staðar og mér líkar það feikilega vel."
Bergþór Másson
Frumkvöðull
„Á einhvern mjög dularfullan hátt hefur Key Habits umbreytt því hvernig ég nálgast allt lífið. Pælingarnar sem þú kemst í þarna finnurðu hvergi annars staðar.“
Berta Gunnarsdóttir
Fjármálastjóri Sjálftæðisflokksins
"Þetta er nálgun sem maður hefur ekki kynnst áður. Það er bæði ógnvekjandi og spennandi að líta inn á við með þessum hætti."

Hvernig kvöldið er uppbyggt

01
Mæting
Það er gott að mæta í síðasta lagi kl 19:50. Þá hefurðu tíma til að fá þér kaffi eða vatn og koma þér fyrir áður en kynningin hefst.
02
Kynningin
Brynjar leiðir okkur í gegnum hugmyndafræði Key Habits. Þá mun hann m.a. kynna okkur fyrir konseptinu um tvær víddir frammistöðu og hvernig samfélagið leggur ofuráherslu á að rækta aðra á meðan við vanrækjum hina.
03
Umræða og næstu skref
Eftir kynninguna gefst tími til umræðu. Einnig verður farið yfir næstu skref fyrir þá sem vilja ganga lengra.

Taktu næsta skref.

22. október · 20:00–22:00 · Sundaborg 5 · 40 sæti í boði
Takk fyrir að skrá þig!
Úps! Eitthvað fór úrskeiðis við staðfestinguna..
Brynjar Karl
Sundaborg 5   /   104 Reykjavík   /   keyhabits@keyhabits.is   /   511 4488