Liðsfundarsköp

Liðsfundarsköp 

  • Fyrirliði stýrir fundinum.
  • Þátttakendur ráða sjálfir hvert af sínum markmiðum þeir ræða á fundinum.
  • Enginn þrýstingur er settur á þátttakendur að ná markmiðum. 
  • Þátttakandi ræður sjálfur hvort hann sækist eftir endurgjöf annarra í hópnum.
  • Ef þátttakendur vilja finna fyrir meiri hópþrýsting geta þeir ákveðið í sameining leiðir til þess.
  • Fókus fundarins er frammistaða ekki niðurstaða. Lykil spurning fundarins " Ertu að fylgjast með markmiðunum þínum?"
  • Umræðutíma skal skipt jafnt á milli þátttakenda.

Liðsfundur

Fyrsti hluti - Stefnan (5 mín): Fyrirliði fer yfir stefnuyfirlýsingu einstaklinga frá síðasta fundi.

Annar hluti - Framganga (5 mín): Mikilvægasta spurning fundarins er spurð: "Eru þátttakendur með skýr markmið og haka þeir við venjur og verkefni daglega?".  Fólk ræðir svo hvernig því hefur gengið frá síðasta fundi.

Þriðji hluti - Fókus (5 mín):Þátttakendur gefa út nýja stefnuyfirlýsingu fyrir næsta mánuð. Fyrirliði skrifar niður stefnuyfirlýsinguna og verður hún rifjuð upp á næst fundi. Þátttakendur ræða eftirfarandi þættir:

  1. Ætla ég að uppfæra einhverja markmiðaflokka í mánuðinum?
  2. Ætla ég að bæta við eða taka út verkefni eða venjur í mánuðinum?
  3. Ætla ég að fylgjast með einverjum venjum í mánuðinum?
  4. Ætla ég að setja pressu á einhverjar venjur og verkefni í mánuðinum?

Fjórði hluti - Verkefni mánaðarins: Þátttakendur ræða og taka þátt í verkefni mánaðarins sem gefið var á síðasta fundi. Verkefnin koma frá þjálfara með góðum fyrirvara og er ætlað að dýpka skilning þátttakenda á gildismiðaðri markmiðastjórnun með hverjum fundinum sem líður. Í lok fundarins kynnir fyrirliðinn nýtt verkefni mánaðarins sem rætt verður um á næsta fundi. Fyrirliði hvetur svo þátttakendur til þess að spyrja þjálfara Key Habits í kerfinu og á vinnustofum ef spurningar vakna, halda sig við efnið í markmiðavinnunni og mæta vel undirbúin/n á næsta liðsfund.

Sundaborg 5   /   104 Reykjavík   /   keyhabits@keyhabits.is   /   511 4488