Stjórnendaþjálfun -
ógleymanleg forysta

"Unforgettable Leadership" er kröfuharðasta æfingakerfi sem Key Habits býður upp á. Þar fá toppstjórnendur beinskeytta og krefjandi þjálfun, nokkuð sem oft fer forgörðum og gleymist hjá einstaklingum sem eru í forystu og hafa þegar náð árangri.

Ávinningur af þjálfuninni er margþættur. Meðal annars:
- Aukin færni sem þjálfari.
- Aukin áhrif og tilgangur.
- Sterkari liðsheild.
- Betri sambandsstjórnun.
- Hugarfar byrjandans endurvakið.
- Aukið jafnvægi og tilfinningalegur sveigjanleiki.

Almenn þjálfun -
Fólk á framabraut

Ert þú að undirbúa þig undir leiðtogahlutverkið?

Key Habits bíður upp á krefjandi og metnaðarfullt æfingakerfi þar sem þú vinnur að auknu virði sem liðsmaður og leiðtogi. Þjálfunin er skipulögð og beinskeytt og ávinningurinn mikill fyrir einstaklinga sem treysta sér í vinnuna:

Meðal ávinnings er:
- Skýrari stefna og aðgerðaráætlanir.
- Skýrara gildismat.
- Aukin áhrif.
- Aukin tilfinningafærni.
- Aukinn drifkraftur og vinnusemi.

Alþjóðleg nálgun

Key Habits hóf starfsemi í London sumarið 2019. Þar fá breskir stjórnendur krefjandi  hugar- og leiðtogaþjálfun.

Íslenskum þátttakendum Key Habits stendur til boða að taka þátt í tímunum í London þeim að kostnaðarlausu.


Umsagnir iðkenda

Key Habits býr yfir fjölbreyttum hópi iðkenda sem öll eiga það sameiginlegt að vilja efla sig í sínum forystuhlutverkum.

Sjáðu hvað iðkendur Key Habits hafa að segja um þjálfunina.

PGM innleiðing

Í PGM innleiðingu lærir þú einfalda og áhrifaríka tækni í persónulegri markmiðastjórnun sem þú þróar svo með þér í gegnum prógrammið og eftir að þjálfun líkur.

Á myndskeiðinu til vinstri lýsir tónlistarmaðurinn Helgi sinni reynslu af innleiðingarferlinu

Þetta segja þau um Key Habits
Örn Guðmundsson
Forstjóri Mannvit
"Brynjar setur nýtt viðmið með sínum námskeiðum og kennir þátttakendum að lyfta sínum markmiðum og venjum á mun hærra plan en áður.''
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Eigandi DMC Incentive Travel
''Ef þú virkilega vilt verða betri þá er þetta aðferðafræðin."
Rakel Guðmundsdóttir
Sérfræðingur hjá Alfa Framtak
"Þú færð svo sjaldan svona heiðarlega endurgjöf en það er nákvæmlega það sem ég þarf til þess að ná enn lengra"
Páll Melsted
Prófessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands
‘’Þetta eru lífsnauðsynlegar aðferðir sem ég er að læra hérna. Þetta hjálpar mér ekki bara í vinnunni, heldur í lífinu almennt.’’
Heimir Hallgrímsson
Fótboltaþjálfari
''Ég mæli hiklaust með Key Habits''
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Skólastjóri Ísakskóla
„Key Habits hefur eflt mig sem stjórnanda. Betri hjálp við það að byggja upp liðsheild hef ég ekki fengið.“
Gróa Björg
Yfirlögfræðingur Skeljungs
"Brynjar er ekkert að sykurhúða hlutina, hann bara talar um hluti sem maður þarf að heyra og það er það sem fólk sækist í hér."
Vilhjálmur Matthíasson
Framkvæmdarstjóri/Eigandi Fagverk
''Key Habits fær mann til fókusa og horfa á það sem skiptir mestu máli''
Sundaborg 5   /   104 Reykjavík   /   keyhabits@keyhabits.is   /   511 4488
Takk fyrir að vilja kynna þér Key Habits. Við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.
Loka glugganum
Takk fyrir! Fyrirspurnin komst til skila.
Því miður kom upp villa við að senda upplýsingarnar.