Kynningarfundur
28. okt kl. 20:00 - 22:00
Skeifan 19, 4. hæð
40 sæti í boði
Frí skráning
Hver er þín næsta framlegðaraukning?
Key Habits er krefjandi og metnaðarfullt æfingakerfi þar sem þú vinnur að auknu virði og áhrifum. Kerfið er hannað fyrir fólk sem er fært í sínu fagi og tilbúið að taka næstu skref í átt að stærri framlegð.
Þjálfunin er skipulögð og beinskeytt og ávinningurinn mikill fyrir einstaklinga sem treysta sér í vinnuna.
Þetta segja þau um Key Habits:

Rakel Guðmundsdóttir
Sérfræðingur Alfa Framtak
"Þú færð svo sjaldan svona heiðarlega endurgjöf en það er nákvæmlega það sem ég þarf til þess að ná enn lengra"
.png)
Örn Guðmundsson
Forstjóri Mannvit hf
"Brynjar setur nýtt viðmið með sínum námskeiðum og kennir þátttakendum að lyfta sínum markmiðum og venjum á mun hærra plan en áður.''

Kristófer Andri
Söluráðgjafi hjá Kerecis
"Ég var búinn að leita af þessu lengi. Aðferðafræðin er mögnuð"

Berta Gunnarsdóttir
Framkvæmdastjóri Modulus
"Þetta er nálgun sem maður hefur ekki kynnst áður. Það er bæði ógnvekjandi og spennandi að líta inn á við með þessum hætti en það er ótrúlegt hvað það hefur góð áhrif á fólk þegar maður byrjar að tala um hlutina eins og þeir eru. Key Habits og Brynjar hefur hert mig upp.

Ari Steinarsson
Framkvæmdastjóri YAY
"Ég hugsaði þegar Brynjar byrjaði að tala, hvert í anskotanum er ég kominn, en hugsaði samt um leið, djöfull er ég til í þetta"
.jpg)
Oddur Grétarsson
Fasteignasali
"Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast þegar ég mætti. En þetta show fór langt fram úr öllum mínum væntingum''

Hrafnhildur Magnúsdóttir
Þjónustustjóri hjá Eldingu
"Brynjar Karl tekur fólk í rússíbanareið. Hann virkaði alls ekki vel á mig fyrst en þegar ég leyfði mér að hlusta og hætti í vörn þá meikaði þetta svo mikið sens. Mögnuð upplifun."

Jóhann Þór Kristjánsson
Sölumaður hjá Sindra
"Það sem mér fannst áhugaverðast var að sjá endalausa möguleika á bætingum ekki bara í vinnunni heldur líka einkalífinu."

Guðmundur Pálsson
Framkvæmdastjóri Pipar/TBWA
"Krafturinn í Brynjari og hvernig hann kemur fram er heillandi, þetta er ólíkt öllu sem ég hef kynnst áður."